26.1.09

Ó vei hversu fyrirsjáanleg atburðarás. Þrátt fyrir það er staða sjálfgræðisflokksins einfaldlega svo veik að það er lítið sem þeir geta að gert.

Nú beinist kastljósið að samfylkingunni, ætli hún þoli það?

Það er ekkert spennandi í framvindu næstu daga. Spennan er hvað menn ætla að setja í ályktanir landsfunda sinna og þar af leiðandi í kosningaskránna. Fjaðrafokið í kringum skiptingu valdsembættanna skyggir á mikilvægi þess er skiptir mestu máli, að móta stefnu út úr vandræðunum.