9.12.08

Ég skil ekki af hverju ég varð ekki hagfræðingur og lögfræðingur! Þetta eru einföld fög sem eru þokkalega skemmtileg en aðalatriðið að það er nóg að gera fyrir fólk með þessa menntun.

Heimspeki og félagsfræði eru miklu flóknari fög og örfáir fá nokkuð að gera. Reyndar er ég kennslumenntaður líka og þar fær fólk eitthvað að gera en ekkert borgað fyrir það.

Það er með ólíkindum hvað auðvelt er að selja fólki klisjuna um að það verði að vera verðtrygging því annars láni enginn neitt og grey fjármagnseigendurnir tapi þá svo miklu af eiginfé og allskonarfé. Hvers konar rugl er þetta? Það er ekkert gefið við það að annar aðilinn í fjármagnsviðskiptum taki litla sem enga áhættu. Almennt er það nú svo að viðskipti fela í sér áhættu og sum viðskipti, sérstaklega fjármagnsviðskipti, fela í sér stórkostlega áhættu. Þeir sem eiga fjármagn kaupa sér hlutabréf, skuldabréf, verðbréf, sjóðsbréf, afleiðbréf og jafnvel skuldabréfavafningaflækjur sem einu orði mætti kalla áhættubréf. En svo þegar talað er um húsnæðislánabréf til almennings, þá þarf allt í einu verðtryggingu ofan á háa langtímavexti og stórkostlega öruggt veð í húsnæði. Þeir sem eiga fjármagn taka almennt áhættu til þess að ávaxta peningana sína, annars væru allir peningar á verðtryggðum innlánsreikningum og engir skuldabréfavafningar komnir í hnút.

Já Ísland er verðbólguland þar sem sveiflur eru oft miklar. Hvað með það? Þeir sem lána búa líka á Íslandi og ættu að búa við það líka að Ísland sé verðbólguland en ekki bara þeir sem borga lánin.

Ég heyrði í þingmanni í útvarpinu um daginn. Hann sagði að það væri flókið mál og erfitt að afnema verðtryggingu og vorkenndi alveg ógurlega gamla fólkinu sem þyrfti að skerða lífeyrinn hjá. Ekki þótti mér það einlægt hjá honum. En hann sagði líka annað sem mér þótti merkilegt: Að hann teldi að verðtryggingin hefði líklega leitt af sér óeðlilega mikið framboð af lánsfé vegna þess hversu litla áhættu það felur í sér!

Okurlán koma hart niður á almenningi. Hér í gamla daga höfðu menn svo miklar áhyggjur af þessu að talið var að guð sjálfur væri andvígur kúgun fjármagnseigenda á almenningi. Nú kúgar almenningur sjálfan sig í gegnum ríkisvaldið (Íbúðalánasjóður) og eigin lífeyrissjóði.

Lífeyrissjóðir mega tapa stórum fjárhæðum á hlutabréfakaupum og öðrum fjármagnsviðskiptum en húsnæðislánum til eigenda sinna. Væri ekki nær að banna hlutabréfakaup og láta tryggingarstærðfræðingana reikna bara út frá mögulegu tapi vegna verðbólgu.

Engin ummæli: